24. DESEMBER

Jólasveinn á aðfangadag.

Látið sveininn kíkja við áður en kvöldið byrjar. Veljið þann kost sem hentar dagskrá fjölskyldunnar.

VALKOSTUR 01

Fastur tími

Þið veljið ákveðinn tíma fyrir heimsóknina. Hentar þegar dagurinn er þétt skipulagður og mikilvægt að vita hvenær sveinninn bankar upp á.

29.900 kr.

Spyrja um lausan tíma ↗
VALKOSTUR 02

Á milli kl. 10 og 14

Þið bókið heimsókn á þessu tímabili. Við látum ykkur vita af nánari tímasetningu um þremur dögum fyrir aðfangadag, þegar leiðin er skipulögð. Gott þegar sveigjanleiki er fyrir hendi.

17.500 kr.

Spyrja um heimsókn ↗

20% af verði jólasveinaheimsókna renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Allar heimsóknir eru háðar framboði og staðfestingu.

MEÐ Í HEIMSÓKNINA

Sælgætispokar handa börnunum

Við getum komið með sælgætispoka handa börnunum í heimsókninni. Við setjum pokana saman sjálfir.

Tilgreinið óskaðan fjölda poka í fyrirspurninni, svo við getum haft þá með þegar sveinninn kemur.

Spyrja um heimsókn og sælgætispoka →