HEIMAHÚS OG FJÖLSKYLDUBOÐ

Heimsókn í heimahús.

Veljið hefðbundna jólastund eða lengri dagskrá með reyndari sveini. Báðar leiðir eru fyrir börn og fullorðna og lagaðar að hópnum.

HEIMSÓKN Í HEIMAHÚS

Hefðbundin heimsókn

Hlý og persónuleg jólastund fyrir fjölskylduna. Sveinninn spjallar við börn og fullorðna, skapar jólastemningu og afhendir gjafir sem þið hafið útbúið.

  • Lengd: um 15–20 mínútur.
  • Spjall, grín og glens, gjafaafhending og færi á myndatökum.
  • Hentar minni fjölskylduhópum.

29.900 kr.

Nánar um heimsóknina ↗
HEIMSÓKN Í HEIMAHÚS

Úrvalsheimsókn

Reyndari sveinn með meiri sviðsreynslu leiðir lengri jólastund með sögum, spuna og gríni. Hann nær til barnanna, unglinganna og fullorðna fólksins.

  • Lengd: um 20 mínútur.
  • Meiri dagskrá með sögu, söng eða spuna eftir hópnum.
  • Gjafaafhending og færi á myndatökum.
  • Hentar líka stærri fjölskylduboðum.

39.900 kr.

Nánar um úrvalsheimsókn ↗

Báðar heimsóknir eiga að vera hlýjar og skemmtilegar. Úrvalsheimsókn gefur meira svigrúm í dagskránni og reyndari svein; hún tryggir ekki tiltekinn einstakling. 20% af verði beggja heimsókna renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

24. DESEMBER

Sérstök heimsókn á aðfangadag?

Þá er hægt að velja heimsókn á föstum tíma eða á tímabilinu kl. 10–14.

Skoða aðfangadag →
Mynd af Skyrgámi á ferð í snjó

MEÐ Í HEIMSÓKNINA

Sælgætispokar handa börnunum

Við getum komið með sælgætispoka handa börnunum í heimsókninni. Við setjum pokana saman sjálfir.

Tilgreinið óskaðan fjölda poka í fyrirspurninni, svo við getum haft þá með þegar sveinninn kemur.

Spyrja um heimsókn og sælgætispoka →