HEIMAHÚS / ÚRVALSHEIMSÓKN
Þegar fleiri koma saman um jólin.
Úrvalsheimsókn er lengri heimsókn með reyndari sveini, meiri dagskrá, spuna og gríni fyrir börn og fullorðna. Hún hentar líka stærri fjölskylduboðum þar sem hópurinn er fjölbreyttur.
Meira rými fyrir alla gestina
Þegar margir eru saman skiptir máli að sveinninn geti lesið hópinn og haldið athygli án þess að heimsóknin verði stíf. Við veljum úr reyndari hópi sveina og skipuleggjum stundina með ykkur.
Segið okkur hversu margir verða, hvernig boðið er og hvort þið viljið að gjöfum sé útdeilt. Við staðfestum efni og lengd heimsóknarinnar þegar við förum yfir fyrirspurnina.
Við getum líka komið með sælgætispoka handa börnunum sem við setjum saman sjálfir. Tilgreinið óskaðan fjölda poka í fyrirspurninni.