JÓLASVEINAÞJÓNUSTA SÍÐAN 1998

Jólasveinn í heimsókn. Jólin lifna við.

Heima hjá ykkur, í fjölskylduboðinu eða á aðfangadag. Við sendum svein sem tekur sér tíma til að hitta fólkið, spjalla og skapa stund sem allir muna.

20% af verði jólasveinaheimsókna til Hjálparstarfs kirkjunnar — síðan 1998.

Jólasveinn Skyrgáms situr í hægindastól við arin í jólaskreyttri stofu
Síðan
1998
20%

af verði hverrar heimsóknar

Yfir 23milljónir krónaað gjöf til Hjálparstarfsins síðan 1998.
Jólasveinarnir afhenda gjöf til Hjálparstarfs kirkjunnar
Afhending gjafar til Hjálparstarfs kirkjunnar. Sjá frétt Hjálparstarfs kirkjunnar ↗

Í ANDA JÓLANNA

Jólagleði sem nær lengra.

Frá stofnun árið 1998 hafa 20% af verði jólasveinaheimsókna Skyrgáms runnið til Hjálparstarfs kirkjunnar. Samtals hafa yfir 23 milljónir króna verið gefnar til starfsins til og með 2025.

Hver heimsókn færir því bæði jólagleði til ykkar og stuðning til fólks sem þarf á honum að halda.

FYRIRTÆKI, FÉLÖG OG SKÓLAR

Jólaböll og heimsóknir fyrir stærri hópa

Fyrirtækjaheimsóknir og jólaböll eiga sitt eigið heimili á Jólaball.is. Þar er hægt að skoða útfærslur fyrir viðburði af ýmsum stærðum.

Fara á Jólaball.is ↗
Jólasveinar Skyrgáms skemmta gestum á jólaballi í Hörpu, með jólatré og sal fullan af börnum og fullorðnum