HEIMAHÚS / HEIMSÓKN Í HEIMAHÚS
Jólasveinninn bankar upp á.
Heimsókn í heimahús er hlý jólastund fyrir fjölskylduna. Sveinninn mætir, gefur sér tíma í spjall við börn og fullorðna og leyfir ykkur að njóta augnabliksins saman.
Hvað má búast við?
Við miðum heimsóknina við hópinn og þær upplýsingar sem þið gefið okkur við fyrirspurn. Segið okkur frá aldri, fjölda, gjöfum og því sem sveinninn ætti að vita fyrirfram.
Jólasveinninn getur afhent gjafir sem þið hafið útbúið og verið með í myndatökum. Nákvæm útfærsla er staðfest við bókun.
Við getum líka komið með sælgætispoka handa börnunum sem við setjum saman sjálfir. Tilgreinið óskaðan fjölda poka í fyrirspurninni.